Gagnrýni

Keyrsla og læti

Trausti Júlíusson skrifar

Swords of Chaos er fjögurra manna band, skipað þeim Úlfi Einarssyni söngvara, Alberti Finnbogasyni gítarleikara, Ragnari Hrólfssyni trommuleikara og Úlfi Hanssyni bassaleikara. Þeir spila hratt og hart rokk.

Flest lögin á þessari fyrstu plötu þeirra hljóma við fyrstu hlustun eins og tónlist ótal annarra harðkjarna metal­sveita. Þegar maður hlustar betur fer maður hins vegar að taka eftir smáatriðunum í sándinu og útsetningunum og lagasmíðarnar sem sumar virka kaótískar í byrjun síast inn.

Það er góður kraftur í þessu bandi. Hljóðfæraleikararnir gefa ekkert eftir og Úlfur söngvari er í meira lagi efnilegur. Nokkur lög plötunnar skera sig úr og breyta heildaryfirbragði hennar.

Alexis Mardas sem er unnið í samstarfi við Kiru Kiru er eins og hljóðlandslag, Each Thousand Years but a Day hefst á lúðrakafla og lokalagið, Northern Crater, leysist upp í miðri keyrslunni og tekur góðan tíma í að fjara út með tilþrifum.

Þessi plata virkar best spiluð í gegn í heild sinni. Ekki er hægt að sleppa því að minnast á umslagið, sem er hannað af Söru Riel og sem er sérstaklega flott. Það má reyndar alveg hrósa Kima fyrir metnað og framsækni í umslagagerð.

Á heildina litið er þetta ágæt rokkplata. Ef þeir félagar bæta aðeins í undarlegheitin gæti næsta plata orðið meistaraverk!

Niðurstaða: Kraftmikil og á köflum stórskemmtileg rokkplata.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×