Lífið

Eurovision: Íslenski textinn uppfyllir skilyrði sigurlaga

Smellið endilega á myndina til að skoða þetta betur.
Smellið endilega á myndina til að skoða þetta betur. Mynd/Wordle
Blaðamenn BBC tóku sig til á dögunum og skoðuðu öll sigurlög Eurovision frá árinu 1956 til að finna út hvaða orð kæmu oftast fyrir. Til þess að þetta gengi upp þurftu þeir að þýða lögin sem voru flutt á öðrum tungumálum yfir á ensku.

Það kemur kannski ekki á óvart en orðið "Love" er hvorki meira né minna en 2% af þeim 12.299 orðum sem sungin hafa verið af sigurvegurunum (og þá eru orð á borð við "I og and undanskilin).

Blaðamennirnir settu öll orðin síðan inn í forrit sem finna má á vefsíðunni Wordle og þá fengu þeir út mynd þar sem niðurstöðurnar eru sýndar myndrænt í skýi. Yfirburðir "Love" fara ekki milli mála. Þess má geta að Hera Björk syngur "Love" tvisvar í lagi sínu.

Nokkur orð komu á óvart, til dæmis "Hallelujah" en þar er trúarlegum lofsöngi Ísrael frá 1979 helst að þakka. Þá má ekki gleyma framlagi finnsku rokksveitarinnar Lordi, sem sungu öllu þyngri lofsöng, "Hard Rock Hallelujah", árið 2006.

Svona lítur orðaskýið fyrir keppnina í ár út. Mynd/Wordle
BBC skoðaði einnig hvaða tungumálum hefur gengið best. Enskan er þar vitanlega í fyrsta sæti, með 42% sigurlaga. Margir veðja á enskuna í keppninni í ár en 25 af þeim 39 lögum sem tóku þátt eru á ensku, meðal annars það íslenska.

Þegar lögin í ár voru síðan sett inn í Wordle-forritið kom "Love" einnig sterkt inn. Þar er Þýskaland fremst í flokki en orðið er sagt 26 sinnum í laginu Satellite. Serbía á síðan til dæmis heiðurinn af orðinu Balkan í orðaskýinu en Hera á Je, Ne, Sais og Quais skuldlaust.


Tengdar fréttir

Eurovision: Íslenska hreinskilnin svínvirkar - myndband

„Ég er bara svo vel upp alin stúlka frá Íslandi," segir Hera Björk meðal annars í samtali okkar í gærdag á hótelinu sem íslenski Eurovisionhópurinn dvelur á í Osló. „Þetta er bara spurning um að vera maður sjálfur, vera hreinskilin og vera ekkert að reyna að búa til eitthvað annað viðmót en maður er alinn upp við," segir Hera.

Eurovision: Svona dansa þau á sviðinu - myndband

Bakraddasöngvararnir Erna Hrönn, Pétur Örn Guðmundsson og Heiða Ólafs, voru hress þegar þau sýndu okkur danssporin sem þau stíga í Telenor-höllinni í úrslitakeppni Eurovision á laugardagskvöldið.

Eurovision: Eiríkur Hauks peppar Heru upp - myndband

„Ég er bara að heimsækja Heru og peppa hana aðeins upp fyrir laugardag," segir Eiríkur Hauksson söngvari sem flutti lagið Valentine lost árið 2007 fyrir Íslands hönd en komst ekki upp úr undankeppninni. „Sko lagið er ekki alveg í mínum stíl sko en ég held mikið upp á Heru og lagið er vel samið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×