Innlent

Aukin sprengivirkni

Sprengivirkni virðist heldur hafa aukist enda gosmökkur dekkri og meiri um sig undanfarna tvo til þrjá daga en var vikuna á undan.
Sprengivirkni virðist heldur hafa aukist enda gosmökkur dekkri og meiri um sig undanfarna tvo til þrjá daga en var vikuna á undan. Mynd/Daníel Rúnarsson
Rennsli í Markarfljót vegna eldgossins í Eyjafjallajökli jókst tímabundið síðdegis í gær og varð þá svipað og í fyrri flóðum þann 30. apríl. Um klukkan hálfátta í gærkvöldi sýni vefmyndavél síðan gufuský við jaðar Gígjökul sem gefa til kynna heitt bræðsluvatn.

Sprengivirkni virðist heldur hafa aukist enda gosmökkur dekkri og meiri um sig undanfarna tvo til þrjá daga en var vikuna á undan að því er segir í skýrslu Veðurstofunnar frá því í gærkvöldi en gjóskufall hefur aukist í nágrenni eldfjallsins. Sama má segja um gosóróann og segir í skýrslunni að aukningin gæti verið vegna samspils íss og hrauns í Gígjökli, eða breytinga í gosrás. Ekkert bendir til gosloka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×