Tíska og hönnun

Glæsileg tískuhelgi að baki

Systurnar Bára, Sigrún og Hrafnhildur Hólmgeirsdætur ásamt hönnuðinum Jette Korine.
Systurnar Bára, Sigrún og Hrafnhildur Hólmgeirsdætur ásamt hönnuðinum Jette Korine.
Um helgina var haldin fyrsta raunverulega „tískuvikan“ í Reykjavík en hún átti sér stað á hátíðinni Reykjavík Fashion Festival sem var haldin í tengslum við Hönnunarmars. Á föstudags- og laugardagskvöld sýndu tuttugu og tveir íslenskir fatahönnuðir hönnun sína í gömlu kaffiverksmiðju Ó. Johnson & Kaaber við Sætún þar sem færri komust að en vildu. Sýningarnar þóttu heppnast mjög vel í þessari glæsilegu umgjörð og nokkur fjöldi erlendra blaðamanna og tískumógula voru á svæðinu til að fylgjast með nýjustu straumunum í hinum vaxandi íslenska tískuheimi. Ljósmyndari Fréttablaðsins mætti á RFF á föstudagskvöldið og myndaði þessa smekklegu gesti. - amb
Fegurðardrottningin Ingibjörg Ragnheiður ásamt stílistanum og förðunarfræðingnum Karli Berndsen.
Hönnuðirnir Guðrún Tara, Katrín Alda og Hilda Stefánsdóttir.


Linda Pétursdóttir sat á fremsta bekk með ljósmyndaranum Veru Pálsdóttur.
Þær Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir, Eva Katrín Baldvinsdóttir og Kristjana Guðjónsdóttir voru sáttar við samkomuna.
Glæsileg umgjörð Ó. Johnson og Kaaber-húsið við Sætún var kjörið til að sýna það besta í íslenskri hönnun. Hér sést mannþröngin á sýningu E-label á föstudagskvöld. Fréttablaðið/Anton





Fleiri fréttir

Sjá meira


×