Framsókn mun ekki taka þátt í núverandi stjórnarsamstarfi Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. desember 2010 10:48 Gunnar Bragi Sveinsson er þingflokksformaður framsóknarmanna. Mynd/ Vilhelm.
Hugsanleg þátttaka Framsóknarflokksins í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi hefur ekki verið rædd á milli flokka, segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, sagðist í samtali við Fréttablaðið í dag íhuga að segja sig úr þingflokki VG. Fari svo að hún, Ásmundur Einar og Atli Gíslason segi sig frá stjórnarmeiirhlutanum standa ríkisstjórnarflokkarnir eftir með minnsta mögulega meirihluta sem hægt er að hafa. „Þetta hefur ekki verið rætt, ekki með formlegum hætti og ekki þreifað á því. En maður veit svo sem ekki hvað einstakir þingmenn eru að tala um milli hinna ýmsu flokka," segir Gunnar Bragi. Aðspurður hvort hann hafi tekið þátt í tali á milli einstakra þingmanna segir hann ekki vera meirihlutavilja á meðal framsóknarmanna að fara inn í þessa ríkisstjórn eins og hún standi. Gunnar Bragi segir þó að framsóknarmenn séu ekki endilega að kalla eftir nýjum kosningum. „Við höfum sagt það, bæði ég og formaður flokksins að við sæjum fyrir okkur þjóðstjórn í einhvern tíma og síðan kosningar. En það er ekki í myndinni að við förum að bæta okkur við ríkisstjórn sem er komin að fótum fram að lappa upp á hana einhvern veginn," segir Gunnar Bragi. Hann bætir því við að framsóknarmenn ætli ekki að ganga að málefnasamningi sem þegar hafi verið saminn.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Sjá meira