Innlent

Eldingar í gosmekkinum - fólk í hættu

SB skrifar
Eldgosið úr fjarlægð.
Eldgosið úr fjarlægð.

Eldingar leiftra í gosmekkinum á Eyjafjallajökli. Fordæmi er fyrir því hér á landi að fólk hefur látist af völdum eldinga í 30 kílómetra fjarlægð frá gosi. Jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir alltaf hættu af eldingum í eldgosum.

"Já það er alltaf einhver hætta, þetta er í gosmekkinum og við hann og það má búast við mikið af eldingum," segir Þórður Arason jarðeðlisfræðingur. Á eldingarkorti á vef Veðurstofunnar má sjá dreifingu eldinganna og er stór rauður punktur yfir gosstöðvunum.

Þórður segir fyrstu eldinguna hafa greinst klukkan hálf sjö í gær og síðan þá hafi þeim slegið látlaust niður.

Spurður um hættuna af þessum eldingum segir Þórður: "Það hefur skeð að fólk hafi dáið í eldingum hér á landi. Í Kötlugosi árið 1755 dóu tveir í eldingu sem laust niður í Skaftárdal um 30 kílómetra frá gosinu."

Hættan er því raunveruleg. Á vef Almannavarna eru leiðbeiningar vegna eldingarhættu og birtir Vísir þær hér með almenningi til upplýsingar.

---

Eldingahætta

Farið ekki undir gjóskufall, vegna eldingahættu og munið að algert myrkur getur verið í öskumekki. Eldingahætta er mest í eða við gosmökk og öskufallsgeira og getur náð í allt að 30 - 40 km. undan vindi frá eldstöðinni. Komið ykkur stystu leið út úr gjóskufalli með því að fara þvert á vindátt.

Forðist að vera í nánd við loftlínur, hávaxin tré, staura, þvottasnúrur, rafmagnsvirki, möstur og landbúnaðartæki hvers konar. Varist jafnframt mýrlendi, vötn og læki.

Losið ykkur við bakpoka, byssur, veiðistangir, garðyrkjuáhöld og annað það sem leitt getur rafmagn.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Almannavarna.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×