Lífið

Peaches tekur ástfóstri við Munda

Jakki Munda setti punktinn yfir i-ið á sviðinu í Berlín í síðustu viku.
Jakki Munda setti punktinn yfir i-ið á sviðinu í Berlín í síðustu viku.
Tónlistarkonan Peaches virðist hafa tekið ástfóstri við íslenska fatahönnuðinn Munda. Peaches kom og spilaði á vel heppnuðum tónleikum Reykjavík Fashion Festival í síðasta mánuði en þá kom hún einmitt fram í vígalegum gulljakka frá honum.

Mundi fékk símtal skömmu fyrir tónleikana eftir að hún hafði skoðað bækling frá honum og líkað vel. Í kjölfarið brunaði hann til fundar við söngkonuna með nokkra poka af fötum þar sem hún fann sér jakkann góða.

Nú um páskana setti Peaches síðan upp ansi metnaðarfullt leikverk í Berlín, Peaches Christ Superstar, og aftur spilaði gulljakkinn frá Munda stóra rullu. Í verkinu er hún með píanóleikarann Chilly Gonzales sér til stuðnings og þrumar út úr sér hverju einasta hlutverki söngleiksins Jesus Christ Superstar eftir Andrew Lloyd Webber, allt frá Júdasi til íbúa Jerúsalem. Listasenan í Berlín tók víst afar vel í þennan flutning.









RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×