Innlent

Hafa ekki keypt notaða bíla vegna eldgossins

Þegar lögin voru samþykkt var því spáð að bílaleigurnar hér á landi myndu kaupa 5-600 notaða bíla á þessu ári. Af því hefur ekki orðið
Þegar lögin voru samþykkt var því spáð að bílaleigurnar hér á landi myndu kaupa 5-600 notaða bíla á þessu ári. Af því hefur ekki orðið Mynd/Anton Brink
Bílaleigur hafa lítið sem ekkert keypt af notuðum bílum í vor eins og vonir stóðu til eftir að lög voru samþykkt sem heimiluðu þeim að fá virðisaukaskattinn endurheimtan við kaup á notuðum bílum. Ástæðan er samdráttur í bókunum sem rakin er til eldgossins í Eyjafjallajökli.

Í mars síðastliðnum var lögum breytt þannig að bílaleigum á Íslandi var gert heimilt að fá virðisaukaskattinn endurheimtan við kaup á notuðum bílum. Áður hafði bílaleigum einungis verið heimilt að fá vaskinn endurgreiddan af nýjum bílum.

Þetta var gert til þess að slá tvær flugu í einu höggi. Annars vegar voru horfur voru á því að skortur yrði á bílaleigubílum í sumar og hins vegar er mikið er til af óseldum bílum í landinu. Vonast var til að þetta myndi glæða lífi í sölu á notuðum bílum.

Þegar lögin voru samþykkt var því spáð að bílaleigurnar hér á landi myndu kaupa 5-600 notaða bíla á þessu ári. Þetta hefði orðið innspýting í markaðinn um upp á 1,2 milljarða. En svo byrjaði að gjósa og stóru bílaleigurnar hafa nánast ekkert nýtt sér þessar nýju heimildir.

Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, segir bílaleigurnar hafi ekki nýtt þessar heimildir þar sem bókanir hafi einfaldlega dregist saman vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. „Þannig að þörfin er ekki til staðar. Því miður."

Gríðarlega hefur dregið úr bókunum bílaleigum. Á sama tíma í fyrra voru hátt í 100 bókanir á dag hjá einni leigunni en þær eru ekki nema 40-50 í dag.

„Framan af vetri voru við með 10-15% aukningu á bókunum. Þegar túristagosið hófst á Fimmvörðuhálsi þá má segja að þær hafi verið á pari milli ára. Þegar Eyjafjallajökull fór að gjósa þá duttu bókanirnar niður í 70-80% af því sem við vorum að fá fram af því. Svo þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti fór í frægt á BBC og fleiri stöðum þá hrundi þetta niður í 50-60%. Þannig að ummælin þar höfðu gríðarleg áhrif og við fundum því miður fyrir þeim," segir Steingrímur.

Stórubílaleigurnar búast þó við að þessar nýja heimildir til þess að kaupa notaða bíla verði nýttar, mögulega seinna í sumar ef bókunum fer að fjölga aftur.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×