Innlent

Flugumferð frá Íslandi samkvæmt áætlun

Keflavíkurflugvöllur. Að öllu óbreyttu verður flogið á alla áfangastaði íslensku flugfélaganna í dag.
Keflavíkurflugvöllur. Að öllu óbreyttu verður flogið á alla áfangastaði íslensku flugfélaganna í dag. Mynd/Teitur Jónasson
Öll flugumferð frá Íslandi er samkvæmt áætlun og er flogið til Kaupmannahafnar, Oslóar og Stokkhólms. Að öllu óbreyttu verður flogið á alla áfangastaði íslensku flugfélaganna í dag. Vélarnar þurfa þó að fara lengri leiðir í sumum tilfellum vegna öskufalls.

Flugvöllum gæti þurft að loka að nýju á Norðurlöndunum ef öskufallið eykst í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Eurocontrol fóru 22.500 farþega- og flutningaflugvélar í loftið í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×