Innlent

Engin merki um að gosi sé að ljúka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Engin merki eru um að gosinu í Eyjafjallajökli sé að ljúka. Mynd/ GVA.
Engin merki eru um að gosinu í Eyjafjallajökli sé að ljúka. Mynd/ GVA.
Engin merki eru um að gosi sé að ljúka, segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans sem send var nú á áttunda tímanum. Gosmökkur stendur upp frá gígnum í Eyjafjallajökli til suðvesturs upp í 4 kílómetra hæð. Gjóskufall er lítið og ekki hefur frést af öskufalli á láglendi. Gróflega áætlað er vatnsrennsli frá Gígjökli um 100 til 120 rúmmetrar á sekúndu.

Nyrðri gígurinn er ennþá virkur. Þar er væg sprengivirkni með hraunslettum sem fara um það bil 100 metra í loft upp. Norðan gígs hefur bráðnað um það bil 300 metra löng geil og upp úr henni standa gufumekkir, einkum frá jöðrum. Þar er hraun að renna og stíga mekkirnir af þar sem hraunið snertir jökulísinn. Gosórói er svipaður og undanfarna daga.

Streymi kviku virðist hafa verið svipað undanfarna sólarhringa, eða um 20-40 tonn á sekúndu. Virkni gosmakkar fer hægt dvínandi. Hraunstreymi hefur að öllum líkindum hafist nærri hádegi á miðvikudag 21. apríl. Tímasetningin er byggð á því að þá hófst nokkuð samfellt vatnsrennsli niður Gígjökul, gufumyndun við norðurjaðar sigketils sást eftir hádegi þann dag úr þyrlu. Þrep kom í gosóróa á sama tíma. Engin merki eru um bráðnun eða vatnsrennsli til suðurs. Þá eru heldur engin merki um að gosi sé að ljúka.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×