Innlent

Telja að Keflavíkurflugvöllur verði lokaður fram yfir helgi

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Icelandair gerir ráð fyrir lokun Keflavíkurflugvelli verði lokað fram yfir helgi og hefur sett upp flugáætlun fyrir mánudaginn sem tekur mið af áframhaldandi lokun Keflavíkurflugvallar vegna spár um dreifingu ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Icelandair að flugáætlun flugfélagsins á mánudag verður með svipuðum hætti og sú áætlun sem sett var upp fyrir helgina. Flugvöllurinn í Glasgow verður því miðstöð millilandaflugs Icelandair fram yfir helgi. Flugvélar Icelandair fljúga þaðan til og frá Bandaríkjunum og til og frá áfangastöðum í Evrópu - á mánudag verður flug til og frá Osló, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, London og Frankfurt.

Millilenda í Glasgow



Tvisvar til þrisvar á dag er síðan flogið með farþega milli Glasgow og Akureyrar. Þeir sem fara til og frá Íslandi með Icelandair fram yfir helgi millilenda því í Glasgow.

Icelandair hvetur farþega til þess að fylgjast vel með því hvernig flugi flugfélagsins til og frá landinu verður háttað því nauðsynlegt getur reynst að gera breytingar með skömmum fyrirvara. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með fréttum og upplýsingum um flugáætlun, komu og brottfarartíma fluganna, m.a. á www.icelandair.is. Þjónustuver Icelandair verður opið um helgina. Rútuferðir eru í boði milli BSÍ í Reykjavíkur og Akureyrarflugvallar.

Starfsmenn komnir til Glasgow og Akureyrar

Starfsemi Icelandair samkvæmt þessari viðbúnaðaráætlun hefur í heild gengið vel í dag, að fram kemur í tilkynningunni. Hún miðast við að halda áfram að veita viðskiptavinum þjónustu, að halda opnum flugsamgöngum milli Íslands og annarra landa og halda starfsemi félagsins áfram við krefjandi aðstæður. Áhafnir, tæknimenn, stjórnendur og þjónustufulltrúar eru komnir til Glasgow og Akureyrar og munu vera þar starfandi eins lengi og þörf krefur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×