Innlent

Ræddu um erlenda fjölmiðlaumfjöllun um eldgosið

Samráðshópurinn fundaði í utanríkisráðuneytinu í dag.
Samráðshópurinn fundaði í utanríkisráðuneytinu í dag. Mynd/GVA
Samráðshópur stjórnvalda og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu hittist í dag í utanríkisráðuneytinu til að ræða samstarf og aðgerðir til að bregðast við erlendri fjölmiðlaumfjöllun um Ísland vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Markmið hópsins er að tryggja að frá Íslandi fari áfram réttar og yfirvegaðar upplýsingar um stöðu mála, að fram kemur í sameiginlegri fréttatilkynningu frá iðnaðar- og utanríkisráðuneytinu.

Þar segir að nokkuð hafi borið á að umfjöllun í erlendum fjölmiðlum hafi verið í æsifréttastíl. Því sé mikilvægt, ekki síst með hagsmuni ferðaþjónustunnar í huga, að halda áfram að koma upplýsingum á framfæri um að öryggi á Íslandi sé tryggt, að vel fari um þá ferðamenn sem hér séu og að íslenskt samfélag gangi að mestu sinn vanagang, þó vissulega séu menn meðvitaðir um áhrif eldgossins.

Í hópnum eiga sæti fulltrúar iðnaðarráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, almannavarna, Ferðamálastofu, Ferðamálaráðs, Útflutningsráðs, Reykjavíkurborgar og Samtaka ferðaþjónustunnar, auk fulltrúa Icelandair og Iceland Express.

Aðstaða fyrir erlenda blaðamenn

Fram kemur í tilkynningunni að Ferðamálastofa og Höfuðborgarstofa hafi nú þegar sett í gang verkefni til að koma á framfæri upplýsingum í gegnum samfélagslega miðla s.s. á Facebook og víðar, auk þess sem Höfuðborgarstofa hefur boðið þeim ferðalöngum sem eru strandaglópar á Íslandi upp á frítt gestakort Reykjavíkur sem veitir þeim ókeypis aðgang á söfn, í sund og strætó o.fl.

Sett hefur verið upp miðstöð fyrir erlenda fréttamenn í stjórnstöð almannavarna en fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins fer með erlend fjölmiðlasamskipti í stjórnstöðinni. Auk þess hafa almannavarnir sett upp aðstöðu fyrir erlenda blaðamenn á Hvolsvelli.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×