Innlent

Íslensk stúlka lést af völdum svínaflensu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Átján ára fjölfötluð stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdum inflúensu A(H1N1), eða svínaflensu, eftir því sem fram kom á fundi sóttvarnarlæknis nú fyrir stundu.

Hún veiktist fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensu A(H1N1).

Í tilkynningu á vegum sóttvarnarlæknis er tekið fram að öll umönnun og meðferð, sem stúlkan naut í veikindum sínum heima hjá sér og á Landspítala, hafi verið mjög góð og í samræmi við aðstæður.



Staðfest tilfelli tvöfaldast


Í tilkynningu frá landlækni segir að inflúensan færist enn í aukana, einkum á höfuðborgarsvæðinu en einnig víða á landsbyggðinni. Undanfarnar þrjár vikur láti nærri að staðfest tilfelli hafi tvöfaldast í hverri viku miðað við fjöldann í vikunni þar á undan. Álag hafi að sama skapi aukist talsvert á starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar, bæði í heilsugæslunni og á Landspítala.

„Um hádegisbil í dag voru 26 sjúklingar á Landspítala vegna inflúensunnar, þar af fjórir á gjörgæsludeild. Frá því á föstudaginn var, 16. október, hafa fimm inflúensusjúklingar verið lagðir inn á spítalann og þrír verið útskrifaðir á sama tíma.



Um 60 manns hafa lagst inn á Landspítala vegna flensunnar


Um 60 manns hafa verið lagðir inn á Landsspítala vegna inflúensunnar frá upphafi faraldursins. Frá 29. júní til 18. október 2009 höfðu borist alls 3.660 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfest inflúensutilfelli á Íslandi samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Staðfest tilfelli eru orðin alls 479," segir í tilkynningu frá sóttvarnarlækni.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×