Innlent

Ástþór æfur út í Rúv - ætlar ekki að mæta í þáttinn í kvöld

Ástþór Magnússon
Ástþór Magnússon
Ástþór Magnússon talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar hvetur fólk til þess að kjósa sinn flokk frekar en að skila auðu og fá þannig sína málpípu inn á Alþingi. Ástþór er hundfúll yfir leiðtogaumræðunum á Rúv í gærkvöldi og hann ætlar ekki að mæta í þáttinn í kvöld.

„Mér lýst vel á daginn en ekki á það hvernig Rúv var að reyna að stýra kjósendum í gærkvöldi, ég lít þetta mjög alvarlegum augum og mín skilaboð til kjósenda eru skýr. Mesta refsingin sem þeir geta veitt gömlu flokkunum er að fá sína eigin rödd inn á þing í gegnum Lýðræðishreyfinguna. Þá hefur fólk beinan aðgang að Alþingi og getur haldið uppi vörnum á næsta kjörtímabili," segir Ástþór sem var afar óhress með framgönu Egils Helgasonar í kringum leiðtogaumræðurnar í gærkvöldi.

„Það er alvarlegt mál að þessu sé ritstýrt með þeim hætti sem Egill Helgason hefur verið að gera. Það munaði hársbreidd að ég hefði labbað upp að borðinu hjá honum í beinni útsendingu í gær og talað við hann, ég er æfur yfir þessu og ætla ekki að mæta til þeirra í kvöld," segir Ástþór sem er afar óhress með að hafa ekki getað kynnt sín mál í þætti Egils Helgasonar eins og aðrir.

„Það er fáránlegt rugl sem er þarna í gangi. Þetta er ekki fjölmiðill þjóðarinnar og ég bara veit ekki fyrir hvaða öfl þetta fólk er að vinna. Þau hvetja fólk til þess að skila auðu og það er bara skýrt brot á kosningalögum. Það er mjög vitlaust að gera það því þau atkvæði falla alveg dauð. Með því að kjósa Lýðræðishreyfinguna fær fólk sína rödd beint inn á þing. Það hlýtur að vera meira virði að hafa einhvern sem heldur uppi mótmælum heilt kjörtímabil, frekar en einn dag."









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×