Innlent

Upp úr sauð í kosningaþætti í gærkvöldi

Upp úr sauð milli leiðtoga stjórnarflokkanna annars vegar og formanns Framsóknarflokksins hins vegar þegar tekist var á um fullyrðingar formanns Framsóknarflokksins í kosningaþætti Stöðvar tvö í gærkvöldi, um að annað bankahrun væri yfirvofandi.

Formenn flokka og framboða sem bjóða fram í kosningunum í dag mættu í lokaþátt "Hvernig á að bjarga Íslandi" á Stöð 2 í gærkvöldi. Byrjað var á að fara yfir stöðu flokkanna samkvæmt síðustu skoðanakönnunum, sem benda til að stjórnarflokkarnir fái samanlagt 37 þingmenn og þar með góðan meirihluta á Alþingi, en Sjálfstæðisflokkurinn tapi tíu þingmönnum og bíði mesta afhroð sem hann hefur nokkru sinni hlotið í kosningum. Bjarni Beneditksson formaður Sjálfstæðisflokksins benti á að um kannanir væri að ræða, en ekki niðurstöður kosninga.

Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins undirstrikaði mikilvægi þess að endurreisa atvinnulífið. Þar væri mikilvægast að auka þorskkvótann um 100 þúsund tonn sem og heimildir í öðrum tegundum sem gæti gefið tugi milljarða í tekjur fyrir þjóðarbúið. Þrátt fyrir slagt gengi í könnunum sagði Guðjón tíma Frjálslynda flokksins langt í frá liðinn. Flokkurinn kæmi alltaf betur út úr kosningum en könnunum.

Endurskoðunarskýrsla sem nú liggur fyrir um stöðu bankanna varð tilefni til snarpra orðaskipta milli Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna og fjármálaráðherra og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins.

En Sigmundur fullyrðir að í skýrslunni komi fram að hætta sé á öðru bankahruni verði ekki gripið til aðgerða. Skýrslan er meðhöndluð sem algert trúnaðarmál á meðan kröfuhafar í eignir bankanna og aðrir hagsmunaaðilar kynna sér efni hennar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×