Innlent

Skyri slett á fleiri kosningaskrifstofur

Fjórir grímuklæddir piltar slettu skyri með grænni málningu á kosningaskrifstofur Framsóknarflokksins í Kópavogi og Sjálfstæðisflokksins í Ármúla í dag. Fyrr í dag var ráðist inn á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði og mjólkurafurðum slett yfir auglýsingaefni og húsbúnað. Þetta var rétt eftir klukkan ellefu.

Í hádeginu var grænleitum vökva skvett úr fötum á rúður og kosningaskilti á kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins við Digranesveg í Kópavogi. Þorsteinn Húnbogason sem var á staðnum telur að um græna málningu blandaða í vatn og skyr hafi verið að ræða.

„Þeir höfðu nú alveg getað komist inn en þeir hafa jafnvel ekki fattað að láta rennihurðina opnast," sagði Þorsteinn kíminn í samtali við fréttastofu.



Þingmennirnir Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir voru meðal þeirra sem tóku þátt að þrífa kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar eftir heimsókn piltanna í morgun.
Þorsteinn veit ekki hvað piltunum gekk til þar sem þeir sögðu ekki neitt og forðuðu sér þess í stað á hlaupum. Búið er að þrífa húsnæðið.

Þá var grænu blöndunni slett á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins við Ármúla eftir klukkan eitt í dag. Þar komust fjórmenningarnir inn og var afar sóðalegt um að litast á skrifstofunni, að sögn fréttamanns fréttastofu.




Tengdar fréttir

Slettu skyri á kosningaskrifstofu

Fjórir grímuklæddir piltar réðust inn á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði á tólfta tímanum í dag og slettu mjólkurafurðum yfir auglýsingaefni og húsbúnað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×