Innlent

9.398 fá að kjósa í fyrsta sinn

Rúmlega 227 þúsund fá að kjósa í kosningunum í dag. Myndin var tekin við kosningarnar 2007.
Rúmlega 227 þúsund fá að kjósa í kosningunum í dag. Myndin var tekin við kosningarnar 2007. Mynd/GVA

Í takt við fjölgun þjóðarinnar hafa aldrei jafn margir verið á kjörskrárstofni fyrir kosningar og nú. Alls eru 227.896 á kjörskrárstofni en sú tala segir ekki til um endanlegan fjölda kosningabærra manna. Tekið verður tillit til látinna og þeirra sem fengið hafa nýtt ríkisfang að kosningunum afstöðnum.

Í kosningunum 2007 voru 221.330 á kjörskrá. Neyttu þá 83,6 prósent atkvæðisréttar síns. Í kosningunum 2003 voru 211.304 á kjörskrá og kosningaþátttakan 87,7%.

9.398 fá nú að kjósa í fyrsta sinn en kosningabærir eru þeir sem náð hafa átján ára aldri á kjördegi.

Kjósendur með lögheimili erlendis eru 9.924.

Af einstökum kjördæmum eru flestir kjósendur í Suðvesturkjördæmi en fæstir í Norðvesturkjördæmi. Er munurinn næstum 40 þúsund manns en aðeins er þremur þingmönnum fleira í Suðvestur­kjördæmi.

Af einstökum sveitarfélögum eru fæstir á kjörskrá í Árneshreppi, 42. Hefur fjölgað um einn frá kosningunum 2007. 44 eru á kjörskrá í Skorradalshreppi og 50 í Helgafellssveit. Flestir eru á kjörskrá í Reykjavík, alls 87.532. Sem kunnugt er skiptist höfuðborgin í tvö kjördæmi. - bþs

















Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×