Viðskipti erlent

Svartur dagur í Bandaríkjunum

Mynd úr safni

Talsvert verðfall varð á bandarískum hlutabréfamarkaði kvöld en fjárfestar hafa efasemdir um að björgunaraðgerðir stjórnvalda dugi til að spyrna fótum við kreppunni.

Associated Press-fréttastofan hefur eftir heimildamönnum í fjármálageiranum að dugi björgunaraðgerðirnar ekki til sé ljóst að tíminn einn muni að lokum binda endi á efnahagsþrengingarnar og verði því mjög erfitt að spá fyrir um hvenær efnahagslífið snúi til betri vegar.

Litlu virðist hafa skipt, þótt Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hafi staðfest björgunarpakka ríkisstjórnarinnar, sem Bandaríkjaþing samþykkti í síðustu viku. Björgunarpakkanum, sem hljóðar upp á 787 milljarða Bandaríkjadala, er ætlað að hleypa lífi í bandarísk efnahagslíf.

Helstu áhyggjur manna vestanhafs snúa að bílarisunum General Motors og Chrysler sem bæði áttu að reiða fram endurskoðaða rekstraráætlun í dag. Í áætluninni átti að koma fram hvort fyrirtæki sjái fram á að greiða til baka þau neyðarlán sem hið opinbera hefur sett inn á reikninga fyrirtækjanna til að forða þeim frá þroti. Enn lá ekki fyrir í kvöld hvort rekstraráætlunin liggi á borði yfirvalda.

Dow Jones-hlutabréfavísitalan féll um 3,79 prósent. Vísitalan endaði í 7552 stigum. Þá féll S&P 500-vísitalan um um 4,56 prósent og endaði hún í 789 stigum.

Báðar vísitölurnar hafa ekki verið lægri síðan seint í nóvember í fyrra en þá höfðu þær fallið hratt í kjölfar gjaldþrot bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers rétt rúmum tveimur mánuðum áður.













Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×