Viðskipti innlent

Century Aluminum fellur um rúm sjö prósent

Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.
Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hefur fallið um 7,34 prósent í dag, bréf Straums lækkað um 1,79 prósent og bréf Bakkavarar um 0,54 prósent. Önnur hreyfing er ekki á hlutabréfamarkaði á fyrsta stundarfjórðunginum.

Dagurinn er reyndar afar rólegur. Ein viðskipti hafa verið með bréf Century Aluminum og Bakkavarar upp á í kringum hálfa milljón króna en þrjú í Straumi upp á 3,6 milljónir.

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,09 prósent og stendur í 313 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×