Innlent

Sendiherra ESB réðst dólgslega að Sjálfstæðisflokknum

MYND/Anton

Björn Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að Percy Westerlund, sendiherra Evrópusambandsins, hafi ráðist „dólgslega á Sjálfstæðisflokkinn" í fréttum Stöðvar 2 í gær. Hann skrifaði á heimasíðu sína í gærkvöldi um viðtalið við sendiherrann þar sem hann var inntur álits á hugmyndum sjálfstæðismanna um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn aðstoði við að taka upp evru á Íslandi.

„Ástæða er til að vekja athygli á hinum makalausu viðbrögðum sendiherra Evrópusambandsins (ESB) gagnvart Íslandi við því stefnumiði Sjálfstæðisflokksins að leita samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um gjaldmiðilsskipti með augastað á evru," segir Björn. Hann segir að fulltrúi sjóðsins hafi í sömu frétt svarað spurningunni á diplómatískan hátt en að hið sama verði ekki sagt um sendiherra ESB. „Percy Westerlund, sendiherra ESB, réðst hins vegar dólgslega á Sjálfstæðisflokkinn og af því alkunna yfirlæti, sem sendimenn Evrópusambandsins telja sér sæma að sýna stjórnmálaflokkum og heilum þjóðum, ef menn beygja sig ekki þegjandi undir Brusselvaldið."

Þá segir Björn að Íslendingar hafi mætt svipaðri framkomu af hálfu ESB strax eftir bankahrunið. „þegar þeir gerðu Ísland að blóraböggli, vegna þess að tilskipun ESB um fjármálafyrirtæki dugði ekki til að tryggja öryggi í rekstri þessara fyrirtækja við lausafjárþurrð á heimsvísu." Hann segir að þá hafi þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson ákveðið, að ekki skyldi haldið fram lagalegum rétti Íslands gagnvart ESB heldur ætti að skoða málið frá pólitísku sjónarhorni. „Nú er borin von, að Össur mótmæli þessari íhlutun sendiherra ESB í íslensk stjórnmál og innanlandsmál. Öll afskiptasemi Brusselvaldsins af íslenskum stjórnmálum er Samfylkingunni þóknanleg - það er hið pólitíska sjónarhorn Samfylkingar gagnvart Brusselvaldinu," segir Björn að lokum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×