Viðskipti innlent

Straumur hækkar mest í Kauphöllinni

William Fall, forstjóri Straums.
William Fall, forstjóri Straums. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Straumi hefur hækkað um 3,15 prósent í Kauphöllinni í dag en félagið er þar eitt á uppleið. Á sama tíma hefur gengi bréfa í Marel Food Systems lækkað um 1,14 prósent og í Össuri um 1,36 prósent.

Gengi annarra félaga í Kauphöllinni hefur ekki hreyfst úr stað.

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,18 prósent það sem af er dags og stendur í 323 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×