Erlu er skítkalt í Kína en slapp við versta veðrið 10. febrúar 2008 15:00
Listakonan Erla Þórarinsdóttir er nú stödd í Kína og hefur búið þar undanfarna tvo mánuði. Hún segir að sér hafi verið skítkalt undanfarnar vikur en hinsvegar sé hún búsett það sunnarlega í landinu að hún hafi sloppið við versta veðrið sem herjað hefur á Kínverja í vetur. "Annars hef ég verið að fylgjast með fréttum að heiman undanfarna daga og ég á ekki von á að neinn vorkenni mér þó ég sé frosin og köld hér," segir Erla í samtali við Vísi. Erla er búsett í borginni Xiamen á suðausturströnd Kína. Borgin er það sunnarlega segir hún að á góðum degi geti hún séð yfir til Taiwan. Erla er að vinna að nýju myndlistarverki og fór til Kína til þess því Kínverjar eru mjög framarlega í steinsmíði, einkum grafit. Erla segir að þar sem hún sé búsett hafi ekki komið frost en hitastigið hafi verið mjög lágt. "Það sem gerir ástandið erfitt er að hér er ekki gert ráð fyrir að þurfi að hita upp hús og því á fólk í erfiðleikum. Það er þó ekkert miðað við það sem hefur verið að gerast hér fyrir norðan borgina," segir Erla. Eins og kunnugt er af fréttum hafa milljónir Kínverja þurft að láta berast fyrir á járnbrautarstöðvum og umferðarstöðvum þar sem samgöngur landsins lömuðust í óveðrinu sem skall á fyrir tveimur vikum og er talið það versta í ein 50 ár. "Það versta er yfirstaðið og nú er fólk hér að halda upp á nýár sitt af miklum móð," segir Erla. "Þetta er eiginlega eina fríið sem fólk fær í Kína og af þeim sökum verður steinaverksmiðjan sem ég skipti við lokuð í einar tvær vikur."
Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Lífið Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Fleiri fréttir „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Klæddu sig upp sem frambjóðendur Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Kosningavökumolar Höllu og Bjössa Millie Bobby og Bon Jovi yngri í hnapphelduna Einstök hæð í retró stíl við Laufásveg Sjá meira