Austurlandið.is

Fóður og fjör framundan

Hornfirðingar eru engir eftirbátar annarra landshluta í þessu og munu Hótel Höfn taka þátt í verkefninu.
 
Hótel Höfn  býður upp á glæsiegan matseðil á föstudeginum 21. febrúar og  á konudaginn 24. febrúar.  Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin á landsbyggðinni og ekkert hefur verið til sparað að hún verði sem glæsilegust. Undanfarin ár hefur þessi hátíð eingöngu verið í höfuðborginni en nú er brugðist við þeirri kröfu að færa hátíðina einnig út á land til að fleiri landsmenn fái notið hennar. En gert er ráð fyrir að alls  11 veitingastaðir um allt land muni taka þátt í hátíðinni en hún verður haldin í samstarfi við Flugfélag Íslands og útflutningaráð. Sótt hefur verið um styrki til sjávarútvegs-, landbúnaðar og iðnaðarráðuneytisins auk vaxtarsamninga á viðkomandi svæðum.