Viðskipti innlent

Bankahólfið: Sölutrygging Skeljungs

Coca Cola, Kókdós
Coca Cola, Kókdós
Glitnir hefur eins og kunnugt er sölutryggt Skeljung, sem er í eigu Fons Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristjánssonar. Lítið fer þó fyrir sölunni enda áhugi fjárfesta lítill í þessu árferði. Það breytir því ekki að Pálmi getur ef hann vill gengið inn í Glitni og sagt stjórnendum bankans að greiða sér fyrirtækið. Unnið er að lausn málsins innan Glitnis, þar sem Pálmi er nú stór fjárfestir meðal annars í gegnum FL Group. Þá var drykkjarvöruverksmiðjan Vífilfell til sölu í um tvo mánuði en þegar á hólminn var komið var fyrirtækið tekið úr sölumeðferð. Umsvifin á þessum markaði hafa dregist saman eins og öðrum. Vilja út úr skemmunni

Það eru fleiri en bankarnir sem þurfa að draga saman seglin. Bílheimar, sem fjárfestingarfélagið Sund á undir merkjum Ingvars Helgasonar, ráðgerði að reisa stóra skemmu á svæði í Hafnarfirði sem kallast Íshella. Þegar er búið að greiða dágóða upphæð inn á reikning verktakafyrirtækisins en nú vilja Bílheimamenn fara sér hægar. Auðvitað eru alls konar afsakanir notaðar en menn eru samt tilbúnir að tapa tugum milljóna til að bakka út úr hundraða milljóna fjárfestingu sem erfitt er að fjármagn í. Svipaða sögu er að segja af Salt Investment, sem er að láta Ístak innrétta fyrir sig tvær hæðir í stóra turninum í Kópavogi. Það þykir ekki eins fýsilegur kostur nú á viðsjárverðum tímum.

Bankamenn skiptu litum

Bíósalurinn nýi í höfuðstöðvum Kaupþings við Borgartún er glæsilegur til fyrirlestra, dimmur eins og lög gera ráð fyrir þegar glærum er varpað á skjá. Þar birti þó til á dögunum þegar erlendir greinendur þráspurðu Hreiðar Má Sigurðsson, forstjóra Kaupþings, hvort bankinn ætlaði ekki örugglega að draga enn frekar úr kostnaði á næstunni, meðal annars í starfsmannamálum. Hreiðar Már tók spurningunum vel og sagði markvisst unnið að hagræðingu á öllum sviðum, en betur mætti gera í þeim efnum og það yrði gert. Birti fyrir vikið yfir í salnum, þegar fjölmargir bankamenn skiptu litum, enda ljóst að niður­skurður í launum og fækkun starfsmanna getur orðið æði sársaukafullur fyrir þá sem fyrir verða.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×