Viðskipti erlent

Skötuveisla Eimskips til styrktar Mæðrastyrksnefnd

Að þessu sinni var skötuveisla Eimskips haldin til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Eimskipafélagið gaf eina milljón króna til starfseminar og söfnuðust að auki fimmhudruðþúsund krónur með sölu á happadrættismiðum til veislugesta.

Ofan á þetta bættust svo rausnarlegar gjafir frá heildverslun Ásbjarnar Ólafssonar sem gaf Mæðrastyrksnefnd 10.000 Prins Polo stykki og Bananar færðu þeim 1 tonn af vínberjum.

Í tilkynningu um málið segir að sunnlenskur bragur var á vestfirskri skötuveislu sem Eimskip hélt síðastliðinn fimmtudag. Heiðursgestir í veislunni voru vinirnir Guðni Ágústsson og Árni Johnsen sem sungu og sögðu sögur eins og þeim einum er lagið. Gylfi Sigfússon forstjóri, sem sjálfur er ættaður úr Vestmannaeyjum, greip í gítarinn og söng Kartöflurokkið, eitt af frægari lögum Árna.

"Sú hefð hefur skapast hjá félaginu að bjóða viðskiptavinum sínum til skötu rétt fyrir jól" segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips. "Að þessu sinni var ákveðið að tóna þetta aðeins niður í samræmi við það ástand sem ríkir í þjóðfðélaginu og ákváðum við færa veisluna í mötuneyti okkar í Korngörðum og spara þannig mikla peninga sem við gátum gefið til þess þarfa stafs sem Mæðrastyrksnefnd vinnur." Segir Gylfi að lokum.

Fulltúrar frá Mæðrastyrksnefnd þær Ragnhildur Guðmundsdóttir og Margrét Sigurðardóttir tóku við styrkjum sem söfnuðust frá Gylfa Sigfússyni forstjóra í veislunni.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×