Viðskipti innlent

Bankahólfið: Tilviljun?

Ari Edwald Forstjóri 365
Ari Edwald Forstjóri 365
Fjölmiðla- og afþreyingarsamstæðan 365, sem meðal annars gefur út Fréttablaðið og Markaðinn, skilaði sínu besta uppgjöri í rekstri til þessa í síðustu viku þrátt fyrir rúmlega tveggja milljarða króna niðurfærslu á eignarhlut félagsins í olnbogabarninu, bresku prentsmiðjunni Wyndeham. Greiningardeild Glitnis spáði að tekjur samstæðunnar myndu nema 3.686 milljónum króna á síðasta ári. Raunin varð hins vegar 4.051 milljón króna. Mismunurinn er, ótrúlegt en satt, 365... milljónir króna. Tilviljun? Meira en bræðrabylta?

Og talandi um tilviljanir. Gengi bréfa í SPRON og Existu hafa löngum fylgst að hvort heldur er í hækkun eða lækkun á hlutabréfamarkaði. Nokkur tenging er þar á milli en SPRON heldur um tæpan átta prósenta hlut í Existu með beinum og óbeinum hætti. En tenginguna má finna á fleiri stöðum. Þeir sem mættu á uppgjörsfundi beggja félaga tóku eftir að fundarstjóri var sá sami, afar skemmtilegur og enskumælandi maður. Þá eru uppgjörin sjálf sérkapítuli, en þau eru skuggalega lík. Uppgjör Existu hvítt með gráum tóni en SPRON grátt með hvítum tóni. Hvort helber tilviljun ráði för skal ósagt látið. Taka skal fram að Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, var auðvitað á báðum uppgjörsfundum enda stjórnarformaður Kistu.

Takk!
Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON

Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, var sáttur þegar hann kynnti uppgjör sparisjóðsins fyrir markaðsaðilum á Grand Hóteli árla fimmtudags í síðustu viku. Guðmundur sagði niðursveiflu á fjármálamörkuðum hafa verið sérstaklega slæma, sem hefði sett skarð í afkomu hlutdeildarfélaga. Það vakti svo sem enga sérstaka athygli en að loknum fyrirspurnum sagði Guðmundur: „Ég vil þakka ykkur fyrir að leggja það á ykkur að koma hingað við þessar erfiðu aðstæður og vona að þið hafið fengið svör við þeim spurningum sem hafa hvílt á ykkur." Kveðjan gat allt eins átt við dýfuna sem gengi hlutabréfa í SPRON hefur tekið eftir að sparisjóðurinn var skráður á markað síðasta haust. Svo var þó ekki því úti hafði blindbylur kaffært götur borgar­innar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×