Tónlist

Haffi, Gröndal og jötnarnir

900-2001 Svala Björgvins - The Wiggle Wiggle Song.
900-2001 Svala Björgvins - The Wiggle Wiggle Song.
Áfram heldur Eurovisionmaraþonið í Laugardagslögum Rúv. Í kvöld er komið að fjórða og síðasta undanúrslitakvöldið og að því yfirstöðnu verður loksins ljóst hvaða átta lög keppa til sigurs á stóra úrslitakvöldinu 23. febrúar.

Fyrstur er Haffi Haff sem stekkur á stokk með eitursvölu aðstoðarfólki sem dansar á eggjandi hátt. Haffi, sem vakið hefur mikla athygli en enginn vissi hver var áður en keppnin byrjaði, flytur grúfhlaðið danslag Svölu Björgvins, The Wiggle Wiggle Song.

Næst er Ragnheiður Gröndal sem flytur lag Margrétar Kristínar Sigurðardóttur, Fabúlu, Don‘t wake me up. Lagið stingur nokkuð í stúf við hin lögin, er einlægt og blítt, en þó dillandi og hresst og vitnar í eldri tíma tónlistarsögunnar en hin tvö.

Lestina rekur snargrípandi evródiskó Barða Jóhannssonar, Ho, ho, ho, we say hey, hey, hey í flutningi Mercedes Club þar sem Ceres 4 og Rebekka Kolbeinsdóttir fara mikinn í framlínunni. Kraftajötnarnir Partí Hanz og Gilzenegger veita þó góðan stuðning bakatil, að ógleymdu heljarmenningu Gaz-man, sem vonandi hefur náð sér af meiðslum og mætir fílefldur til leiks.

Gestadómari er söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir en aðstandendur keppninnar neita að gefa upp hver er gestur kvöldsins. Láta aðeins uppi að hann borði 7500 kalóríur á dag og eigi íslandsmet sem er örskammt frá heimsmetinu í þeirri grein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×