Viðskipti innlent

Bankahólfið: Leitin mikla

Peter Lehmann Shiraz rauðvín
Peter Lehmann Shiraz rauðvín
Það vakti nokkra undrun að Jón Karl Ólafsson, fráfarandi forstjóri Icelandair, skyldi látinn taka pokann sinn. Svo virðist sem núverandi eigendur hafi ekki verið ánægðir með störf hans eða þá að menn hafi ekki náð að ganga og tala í takt. Reynsla Jóns Karls á rekstri flugfélaga er nokkur og hann er góður talsmaður skráðs félags. En það voru engar biðraðir í starf hans samkvæmt heimildum Markaðarins. Talað var við að minnsta kosti sjö einstaklinga og þeim boðinn stóllinn áður en Björgólfur Jóhannsson sagði já. Skiljanleg ákvörðun hjá Björgólfi enda stendur Icelandair illa og björgunarleiðangurinn hafinn. Ræða kynlíf eftir símafund

Búast má við miklu fjöri á hluthafafundi Elisa 21. janúar þar sem Björgólfur Thor Björgólfsson og Orri Hauksson munu þurfa að kljást við þjóðarsál Finna til að breyta þessu rótgróna síma­fyrirtæki. Margir hluthafar eiga seturétt og ef til vill mun blása köldu í átt að Íslendingum enda fundurinn haldinn í skautahöllinni í Helsinki. Eftir að prúð­búnir hluthafar og ný stjórn ganga út úr höllinni tekur enn fjörugri fundur við. Þá verður einhvers konar kynlífsráðstefna haldin í skautahöllinni undir nafni Sexhibition. Fólk úr þeim geira kemur þá saman og ræðir sameiginlega hagsmuni iðnaðarins. Varla munu þessir hópar skarast mikið og vonandi truflar kynlífsráðstefnan ekki þjóðarsál Finna eins mikið og Íslendinga þegar fólki var úthýst af Hótel Sögu í fyrra.

Gott partíNokkur geðshræring greip um sig þegar Kaupþing sendi lykil­mönnum Fjármálaeftirlitsins rauðvín um jólin. Forstjóri eftir­litsins ánafnaði starfsmannasjóðnum flöskurnar og verður líklega haldið gott partí á næstunni þar sem veigarnar verða teygaðar. Þessir heilögu Kínamúrar eru auðvitað nauðsynlegir til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið megi ekki þiggja rauðvínsflösku frá fjármálafyrirtækjum þá er það svo að fjármálafyrirtækin standa straum af rekstri eftirlitsins á hverju ári. Það mun varla hafa áhrif á viðhorf starfsmanna FME til skjólstæðinga stofnunar­innar enda má segja það hreina og beina skattheimtu. Og varla rennur króna af þeirri fjármögnun til kaupa á rauðvíni eða öðrum veigum í ferðum starfsmanna eða uppákomum.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×