Innlent

Guðjón Arnar segist þokkalega sáttur

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
MYND/Sigurður Jökull

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist þokkalega ánægður með útkomu kosninganna. Flokkurinn heldur sama þingmannafjölda og fyrir kosningarnar þó töluverðar breytingar verði á þingliðinu. Flest atkvæði eru á bakvið hvern einstakan þingmann flokksins af öllum þingflokkunum.

„Við höldum okkar fjölda þrátt fyrir að hart hafi verið sótt að okkur," segir Guðjón. Þingmennirnir Magnús Þór Hafsteinsson og Sigurjón Þórðarson náðu ekki kjöri en í stað þeirra koma inn á þing þeir Jón Magnússon og Grétar Mar Jónsson. Á kjörtímabilinu sem var að líða yfirgaf Gunnar Örlygsson þingflokkinn en seinna gekk Kristinn H. Gunnarsson til liðs við frjálslynda.

Guðjón segist viss um að þeir Magnús og Sigurjón eigi eftir að halda áfram í stjórnmálum þrátt fyrir að detta út af þingi. „ Þetta eru ungir og efnilegir menn sem eiga framtíðina fyrir sér," segir hann. Aðspurður um hvernig næstu dagar komi til með að þróast segist hann gera ráð fyrir því að Geir Haarde muni fara sér hægt. „Ég geri ráð fyrir því að Geir taki sér tíma í að velta þessu fyrir sér. Framsóknarflokkurinn fær hins vegar mikinn skell og miðað við yfirlýsingar formannsins og fleiri leiðtoga flokksins er ekki hægt að draga ályktanir um að þeir ætli sér að starfa áfram í þessari ríkisstjórn", segir Guðjón Arnar. „En þetta skýrist fyrr en síðar og það eiga allir eftir að ræða við alla."

Að sögn Guðjóns er greinilegt að flokkurinn sé að festa sig í sessi þrátt fyrir spár um annað „Við erum greinilega að festa okkur í sessi, komum út á sama stað og síðast, og vantar bara örfá atkvæði til að ná fimmta manni inn. Við erum eina ferðina enn að lenda í því að vera sá flokkur sem er með flest atkvæði á bak við hvern þingmann, en svona er kerfið bara og lítið við því að segja." 3308 atkvæði eru á bakvið hvern þingmann flokksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×