Skoðun

Fimm sekúndna valdatími

Hverjir borga alvarleg auðlindaspjöll þegar upp er staðið? Á hverjum bitna þau? Þú, lesandi góður, hefur vald í um það bil fimm sekúndur í kjörklefanum að velja hvort íslenska þjóðin heldur áfram á braut stóriðju og náttúruspjalla eða tekur sér tíma til að athuga sinn gang.

 Fimm sekúnduna valdatími getur samt breytt ýmsu og jafnvel aukið vald þitt. Notaðu þetta dýrmæta augnablik vel.

Stjórnmál snúast um vald til að hafa áhrif og breyta því sem betur má fara og núna, einmitt núna, snúast stjórnmál hvað mest um fegurð landsins, ímynd og auðlindir og ekki síst hvort við ætlum að glata því vinalega samfélagi sem við höfum þekkt á Íslandi eða veljum stríð milli staða, illindi og endalaus átök manna á milli, gagnaöflun um náungann eða opið og frjálst samfélag sem okkur þykir svo vænt um og erum stolt af.

Áður en þú beitir valdinu í kjörklefanum þessar fimm sekúndur skaltu muna að þú munt líka hafa áhrif á fiskinn í sjónum, hin gjöfulu Íslandsmið. Alþingiskosningarnar 2007 snúast nefnilega líka um þorskinn í sjónum og ef til vill örlög hans. Sjáðu til.

1. Þorskurinn hrygnir við ósa jökulánna einkum við Suðurströndina en líka allt í kringum landið. Mest munar um Þjórsá og Ölfusá. Þetta segir okkur að jökulár landsins eru nátengdar velferð mikilvægasta fiskistofns landsins.

Er þá ráð að fikta í ánum og trufla þessa starfsemi? Stíflur og uppistöðulón gera það.

2. Ástæðan fyrir því að þorskurinn hrygnir við ósana er framburður jökulvatna en í honum eru steinefni, næring og uppleyst efni sem eru aflvaki svifþörunga í sjónum fyrsta hlekksins í fæðukeðju  hafsins. Þar við taka svifdýr. Þörungarnir taka við sér á vorin, síðan svifdýrin einmitt á þeim tíma sem þorskseiðin þurfa á næringu að halda. Þetta tengist vorflóðum fallvatnanna. Allt er í takti.

3. Rennsli villtra fallvatna sveiflast frá vori til hausts og frá morgni til kvölds. Flóðin valda því að ofan á strandsjónum myndast ferskvatnslag og þar sem ferskvatn mætir salta sjónum er framleiðslan og fjörið mest.

4. Stíflur og uppistöðulón trufla náttúrulegar sveiflur og starfsemina sem henni fylgir. Efnin sem skapa gróskuna við ósana verður að miklu leyti eftir í uppistöðulónunum.

Var það af þessum ástæðum sem þorskstofninn hrundi nokkrum árum eftir að Þjórsá var stífluð við Búrfell? Er síminnkandi þorskstofn afleiðing þess að trufla Selvogsbanka-slagæðina miklu – Þjórsá-Tungnaá - með stíflum?

Kínverjar eru að upplifa eyðingu hins gjöfula veiðibanka Austur-Kínahafs eftir að þeir byggðu Þriggjagljúfrastíflu. Þeir fylgdust með atburðarásinni fyrir og eftir stíflu.

Við bara stíflum. Vegna barnanna okkar ber okkur að staldra við; rannsaka og ígrunda hvort hamagangurinn sé skynsamari en að VITA hvað við erum að gera landi og þjóð með virkjunum í jökulám.

 Þitt er valið og valdið – í fimm sekúndur – sem geta orðið miklar örlagasekúndur fyrir fegurð landsins, fugla himins og fiskinn í sjónum – okkur öll.

Guðmundur Páll Ólafsson

náttúrufræðingur og höfundur bókanna

Þjórsárver (2007), Hálendið í náttúru Íslands (2000)

og Ströndin í náttúru Íslands (1995)



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×