Innlent

Fyrirspurnartími hjá ráðherrum á landsfundi

Landsfundur sjálfstæðismanna hélt áfram í morgun með almennum umræðum. Eftir hádegishlé, um klukkan tvö, er svo komið að fyrirspurnartíma ráðherra flokksins en þar munu fimm ráðherrar svara spurningum landsfundargesta. Dagskrá tengd fundinum verður langt fram á kvöld en hann heldur svo áfram á morgun og lýkur á sunnudag með ræðu formanss flokksins.

Sjálfstæðismenn lofa ungum, jafnt sem öldnum, kjarabótum ef þeir ná að sitja í ríkisstjórn að loknum kosningum. Formaður flokksins boðaði minni skerðingu á námslánum vegna tekna námsmanna og að þeir sem orðnir eru sjötugir geti haldið áfram að vinna án þess að bætur Tryggingastofnunar skerðist á móti.

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í setningarræðu landsfundar í gær að sjálfstæðismenn leggi ekki í vana sinn að fara í kosningar með mörg kosningaloforð. Það mátti þó finna mörg loforð í ræðu hans ef grannt var að gáð. Þannig lýsti formaðurinn því hvernig háskólasamfélagið á Íslandi hefði vaxið í stjórnartíð flokksins og fjöldi háskólanema tvöfaldast á tíu árum. Allt þetta unga fólk sæi fram á áhugaverð störf.

Það er greinilegt að sjálfstæðismenn gera tilraun til að vera ekki utangátta í umhverfismálum. Formaðurinn undirstrikaði mikilvægi stóriðjunnar fyrir Austfirði, sem væru orðnir samkeppnishæfir við höfuðborgarsvæðið í atvinnumálum og sagði það hljóta að verða keppikefli að landsbyggðin yrði það öll.

Og þá að ölduðum, í þeim málaflokki var formaðurinn líka með loforð. Hann minntist samstarfs við Öryrkjabandalagið vegna nýlegra tilllagna Örorkumatsnefndar, þar sem gert sé ráð fyrir að starfsgeta öryrkja verði metin og almannatryggingakerfið bætti það sem upp á vantaði. Hann vildi fara svipaðar leiðir varðandi aldraða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×