Innlent

Niðurstaða í álverskosningu hljóti að vera umhugsunarverð fyrir fjárfesta

MYND/GVA
Samtök atvinnulífsins segja að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í Hafnarfirði hljóti að verða umhugsunarefni öllum þeim sem hafi í hyggju að efna til uppbyggingar nýs reksturs eða umfangsmikillar stækkunar á núverandi rekstri hér á landi og segir að það verði að vera ljóst hvernig sveitarfélög hyggist fjalla um mál áður en lagðir eru tugir eða hundruð milljóna í undirbúning verkefna.

Í frétt á heimasíðu samtakanna er bent á að stækkun álvers Alcan hafi verið í undirbúningi í mörg ár og hún hafi farið í gegnum ýmis ferli innan stjórnsýslunnar ásamt því sem Hafnarfjarðarbær hafi selt Alcan lóð undir stækkunina. Eftir margra ára undirbúnings- og hönnunarvinnu hafi þessu öllu verið kippt til baka með ákvörðun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um íbúakosningu.

Samtök atvinnulífsins segja enn fremur að það sé atvinnulífinu afar mikilvægt að allar leikreglur sem um það gilda séu einfaldar, skýrar og gegnsæjar. Forsenda uppbyggingar og framþróunar sé stöðugleiki í efnahagslífi og stjórnarfari þannig að ekki sé breytt um leikreglur á miðri leið. Eins og málum sé nú háttað séu það sveitarstjórnir sem gefi út framkvæmdaleyfi að uppfylltum skilyrðum um umhverfismat og ef það eigi að verða viðtekin venja að afstaða þeirra breytist að loknum kosningum geti það haft áhrif á undirbúning einstakra verkefna.

Benda samtökin á að trúverðugleiki og traust séu lykilþættir í samskiptum við fjárfesta. Bregðist það verði erfitt að sækja fram að nýju og hætt sé við því að eftir þessa niðurstöðu úr stækkunarferli álversins í Straumsvík teljist Ísland ekki jafn áhugaverður kostur fyrir erlendar fjárfestingar og áður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×