Innlent

Segist þurfa tvo daga til að klára yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri

Hádegishlé er nú í Baugsmálinu en í morgun hafa yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri Jóhannesssyni haldið áfram. Fram kom í máli setts saksóknara, Sigurðar Tómasar Magnússonar að hann þyrfti að líkindum bæði daginn í dag og á morgun til að ljúka yfirheyrslum yfir honum. Hugsanlegt væri að það yrði ekki nóg því yfirheyrslur verða aðeins eftir hádegi á morgun.

Verjendur Jóns Ásgeirs og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, gagnrýndu saksóknara fyrir að halda sig ekki við tímaáætlanir um yfirheyrslur og benti Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, á að yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri hefðu þegar staðið lengur en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Sigurður Tómas sagði hins vegar að styttri tími færi í yfirheyrslur yfir Tryggva Jónssyni, sem er næstur á listanum, en áætlað hefði verið og því myndi þetta jafnast út. Formaður dómsins, Arngrímur Ísberg, sagðist leggja trúnað á þau orð en tók að hluta undir umkvartanir verjenda.

Jón Ásgeir var í morgun yfirheyrður vegna 14. ákæruliðar endurákæru en þar er honum og Tryggva gefið að sök að hafa rangfært bókhald Baugs með þeim hætti að bókfærð var sala á hlutabréfum í Arcadia til Kaupþings án þess að sú sala hefði átt sér stað. Þessum ásökunum neitaði Jón Ásgeir.

Eftir að yfirheyrslum vegna 14. ákæruliðar var lokið tók við sá fimmtándi en þar er Jóni og Tryggva gefið að sök að hafa látið gefa út tilhæfulausan kreditreikning frá Nordica, félagi Jóns Geralds Sullenbergers, upp á nærri 62 milljónir króna árið 2001. Var upphæðin færð á viðskiptamannareikning Nordica í bókhaldi Baugs og þannig til tekna hjá Baugi. Þá er Jón Gerald ákærður í þessum lið fyrir að hafa aðstoðað við bókhaldsbrotið með því að gefa út reikninginn.

Yfirheyrslum vegna þessa liðar lauk ekki fyrir hádegi en haldið verður áfram kl. 13.30.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×