Lífið

Ilmur Kristjáns á uppleið í fjármálageiranum

Freyr Gígja Gunnarsson skrifar
Ilmur Kristjánsdóttir leikur aðalhlutverkið í nýrri þáttaröð sem mun verða sýnd á Stöð 2 næsta vetur.
Ilmur Kristjánsdóttir leikur aðalhlutverkið í nýrri þáttaröð sem mun verða sýnd á Stöð 2 næsta vetur.
Silja Hauksdóttir og Ilmur Kristjánsdóttur ásamt handritsmógúlnum Sigurjóni Kjartanssyni sitja nú sveitt við skriftir fyrir nýja gamanþáttaröð með dramatísku spennu-ívafi sem sýnd verður á Stöð 2 á næsta ári.

Silja og Ilmur hafa verið hluti af Stelpunum í síðustu þáttaröð sem nú er sýnd á Stöð 2 en að sögn leikstjórans verður nýja þáttaröðin eiginlega ekkert í líkingu við þá þætti að því leyti að um er að ræða framhaldsþætti.

„Nei, þættirnir fjalla um unga konu sem hyggst brjótast upp metorðastigann í fjármálageiranum með fjörugt ímyndunarafl að vopni," segir Silja þegar Fréttablaðið náði tali af henni en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur þættinum verið gefið vinnuheitið Silgja. 

Silja gat ekki tjáð sig um hverjir yrðu við hlið Ilmar á skjánum enda væri verið að klára öll formsatriði. Aðrar persónur og leikendur væru enn í mótun . Og það er því ljóst að verið er að bregðast við því mikla æði sem reið yfir þjóðina í kjölfar sýninga á Næturvaktinni. Þáttaröðin er vinsælasti sjónvarpsþáttur Stöðvar 2 frá upphafi og fékk tvenn Edduverðlaun.

Silja segir þetta einfaldlega vera mikið gleðiefni. „Mér finnst bara frábært að þetta er það sem þjóðin vill sjá. Og áhorfendur heima í stofu eru farnir að biðja um íslenskt sjónvarpsefni í miklu meiri mæli og ekki síst gamanefni," segir leikstjórinn.

Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, gat ekki sagt fyrir um hver yrðu örlög Stelpnanna nú þegar Silja og Ilmur væru horfnar til annarra verkefna á vegum Stöðvar 2. „Það hafa engar ákvarðanir verið teknar um þær," segir Pálmi sem reiknaði með því að nýi sjónvarpsþátturinn yrði á dagskrá næsta vetur.

Stelpurnar hafa verið á dagskrá stöðvarinnar í fjölmörg ár og notið mikilla vinsælda en töluverðar breytingar hafa átt sér stað á upphaflegum leikhópi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×