Viðskipti innlent

Banakahólfið: Misjafnt gengi, líka í fréttum

...
...
Nokkur fljót­færnis­bragur þykir á forsíðufrétt 24 stunda í gær þar sem slegið er upp sem mikilli nýbreytni væntan­legum íbúðalánum Sparnaðar ehf. í evrum. Tilfellið er nefnilega að hér hefur fólk átt þess kost um árabil að taka lán í evrum, hver í sínum viðskiptabanka, og þá á vaxtakjörum sem um þá mynt gilda hverju sinni. Meiri afglöp eru hins vegar að hvergi kemur fram í fréttinni að lántöku í annarri mynt en krónum fylgir gengisáhætta. Ef slík lán eru tekin þegar krónan er sterk hækkar jú höfuðstóllinn (í krónum talið) þegar hún veikist. Væntanlega hafa menn nú samt orð á þessari áhættu hjá Sparnaði þegar fólk tekur að leita upplýsinga þar um vænleika þess að taka slík lán. Kveður við nýjan tón

Í þeim forsmekk að fjármála­óróleika sem íslensku bankarnir fengust við í fyrra var alvanalegt í úttektum og greiningum erlendis að Glitnir var talinn vænsti kosturinn af þeim þremur. Var það gjarnan rakið til þess að viðskiptamódel bankans væri nær þeim evrópsku, meðan Kaupþing, sem gjarnan var talinn áhættusæknari og frekar að amerískri fyrirmynd í vaxtarstefnu, var óvinsælastur. Núna kveður heldur við annan tón í nýrri greiningu svissneska alþjóðabankans UBS. Þar segist UBS fremur mæla með bréfum Kaupþings en Glitnis, þar sem sá síðarnefndi reiði sig í meiri mæli á heimamarkað á Íslandi og svo í Noregi þar sem hægi á, auk þess sem Glitnir sé líklegri til að ráðast í fyrirtækjakaup.

SMS-afmæli

Það eru fleiri en Jesús sem fagna tímamótum um þetta leytið en SMS-ið er komið á unglingsár, fagnar fimmtán ára afmæli um þessar mundir. Fyrsta SMS-ið mun hafa verið sent á milli verkfræðinga sem störfuðu hjá breska farsímarisanum Vodafone og innihélt jólakveðju. Þetta þótti ágætur samskiptamáti fyrir vinnufélaga til að hafa samband sín á milli. Tæknin taldist þó ekki merkileg í fyrstu innan veggja farsímarisans. Það mun því hafa komið á óvart þegar hróðurinn barst út fyrir dyrnar. Nú er svo komið að milljónir þumla víða um heim leika um lyklaborð farsíma í dag. Þetta myndi nú kallast að láta koma sér þægilega á óvart.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×