Viðskipti innlent

Í svigi

Ég er svo kátur þessa dagana að ég næ mér varla niður á jörðina. Fyrir menn eins og mig eru svona sveiflutímabil eins og svigbrekka fyrir góðan skíðamann.

Því erfiðari, því meiri ögrun, og auðvitað veit maður að það komast ekki allir á leiðarenda án þess að fella hlið eða detta ef því er að skipta.

Í gegnum tíðina hefur maður séð marga detta og suma illa. Sjálfur stóð ég helvíti tæpt 2002, en snarræði reddaði mér frá stóru tjóni. Síðan þá hefur leiðin bara legið upp á við.

Þessar vikurnar hefur maður stokkið inn og út hratt og örugglega. Sett sér skýr markmið og ekki látið berast með straumnum. Á svona tímabilum verður maður að hafa skýr tapsölumörk, annars getur maður farið illa. Þetta er hins vegar svakalegt stuð ef maður hefur maga í þetta. Um allan heim eru líka flottar hengjur þessa dagana og frábært að vera með cash þegar toppfyrirtæki dúndrast niður. Heimurinn er auðvitað alltaf fullur af tækifærum og jójómarkaður eins og nú er og reyndar dálítið með krónuna yfirleitt er fín uppspretta gróða fyrir menn eins og mig.

Hér heima er náttúrlega helst að menn horfi í átt að TM. Ég spái að vinir og vandamenn FL verði í hópnum sem kaupir af Glitni. Svo spái ég yfirtöku innan árs. Hef grun um að það þurfi aðeins að vinna í reiting-málum áður en félagið er tekið af markaði. Forstjórinn er sennilega búinn að finna skjalið með síðasta starfslokasamningi til að kópera. Ég hugsa að það sé fínt fyrir FL að eiga óskráð tryggingafélag í miðju starfseminnar. Sama módel og Exista og Milestone.

Annars ætti maður kannski að fara að fá sér banka og tryggingafélag sjálfur. Það er nefnilega eins og að eiga hótel í Austurstræti og Bankastræti í Matador. Þá er engin hætta á að maður fari beina leið í steininn og fái engar 2.000 krónur þótt maður fari yfir byrjunar­reitinn.

Spákaupmaðurinn á horninu





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×