Tónlist

Fáanleg í október

Fyrsta plata Magna kemur út í Bandaríkjunum 2. október.
Fyrsta plata Magna kemur út í Bandaríkjunum 2. október.
Fyrsta sólóplata rokkstjörnunnar Magna Ásgeirssonar verður fáanleg í stafrænu formi í Bandaríkjunum frá og með 2. október næstkomandi. Magni á stóran aðdáendahóp í Bandaríkjunum eftir þátttöku sína í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova og því verður fróðlegt að sjá hvernig viðtökur platan fær.

„Ég er rosalega ánægður með að þetta er loksins að verða að veruleika og ég vona að þið getið beðið aðeins lengur,“ skrifaði Magni til aðdáenda sinna á myspace-síðu sinni.

Plata Magna og lag hans If I Promise You The World eru enn í efsta sæti Tónlistans. Hefur platan selst í um tvö þúsund eintökum hérlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×