Innlent

Straumsvíkurkosningin hefur ekkert gildi að lögum

Jón Sigurðsson segir ákvörðunina um að hafna stækkun þess ekki hafa neitt gildi að lögum. Steingrímur J. Sigfússon segir það lýðræðislega óhæfu ef menn ætla sér ekki að virða þessa niðurstöðu.
Jón Sigurðsson segir ákvörðunina um að hafna stækkun þess ekki hafa neitt gildi að lögum. Steingrímur J. Sigfússon segir það lýðræðislega óhæfu ef menn ætla sér ekki að virða þessa niðurstöðu.

„Það er ekki hægt að tala um neinn sigurvegara í kosningum sem fara á þessa leið. Miklu frekar væri þá að tala um bræðrabyltu," segir Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um niðurstöðu kosninga um breytt deiliskipulag vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Hann telur mikilvægt að skýrar reglur gildi um íbúakosningnar sem þessar.

„Nú er það þannig að þessi ákvörðun hefur ekkert gildi að lögum. Sveitarstjórnin hefur allt vald og alla ábyrgð og getur breytt henni á morgun ef henni sýnist svo. Í þeim skilningi stenst hún að minnsta kosti ekki fram yfir næstu kosningar."

Jón segist það einnig ákaflega óheppilegt að atkvæðagreiðsla sem þessi snúist gegn einu fyrirtæki. „Það er andstætt öllu frelsi í atvinnulífi og allri jafnræðisreglu."

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, telur niðurstöðuna sögulegan sigur. „Í fyrsta lagi sigur lýðræðisins yfir afli peninganna og því hvernig stórfyrirtækið og bakhjarlar þess beittu sér. Í öðru lagi er þetta tímamótasigur í umhverfisbaráttunni." Hann segir það alveg skýrt í sínum huga að niðurstaðan er bindandi. „Það væri lýðræðisleg óhæfa og myndi valda stórstyrjöld ef menn ætluðu ekki að virða þessa niðurstöðu. Og það er enginn vafi í mínum huga að hún er hluti af vitundarvakningunni og breytingunni í þjóðarsálinni í þessum málum almennt."

Jón Sigurðsson

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir ánægjulegt hversu góð kosningaþátttakan hafi verið. „Ég hefði kosið meira afgerandi niðurstöðu, sama á hvorn veginn þetta hefði farið, en þetta er niðurstaðan og það ber að fara eftir henni þótt þetta hafi verið knappt."

Hún segir mikla pólitík hafa verið í kosningunum og að sér finnist skoðanaleysi forystumanna Samfylkingarinnar standa upp úr að þeim loknum. „Menn verða að koma hreint til dyranna en ekki að skýla sér á bak við íbúaatkvæðagreiðsluna eða þjóðaratkvæðagreiðslu í framtíðinni. Sem kjörnir fulltrúar verða menn að þora að taka afstöðu, annars eru þeir einfaldlega embættismenn."

Steingrímur J. Sigfússon

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir hina miklu kosningaþátttöku vera sigur fyrir lýðræðið og frábæran vitnisburð um að stefna Samfylkingarinnar um beint íbúalýðræði virki. „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lagði málið fyrir kjósendur og það voru engin skilyrði sett önnur en þau að einfaldur meirihluti réði. Það er algerlega ljóst að siðferðislega og pólitískt er bæjarstjórnin því bundin af þessari niðurstöðu."

Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart. „Það eru sjálfsagt margar ástæður fyrir því að þetta fór eins og það fór. En ég held að það sé fyrst og fremst það að fólk vill fara sér hægar í stóriðjumálum."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×