Tónlist

U2 byrjuð á næstu plötu

Írsku rokkararnir í U2 eru að taka upp nýja plötu.
Írsku rokkararnir í U2 eru að taka upp nýja plötu.

Írska hljómsveitin U2 hefur hafið upptökur á sinni næstu plötu, sem mun fylgja eftir How to Dismantle an Atomic Bomb sem kom út 2004.

Upptökustjóri verður Rick Rubin, sem hefur unnið með Red Hot Chili Pepper, Johnny Cash, System of a Down, Weezer og nú síðast, Metallica.

„Við erum að vinna í nýjum lögum og höfum sökkt okkur niður í verkefnið,“ sagði gítarleikarinn The Edge. „Við ætlum ekkert að hugsa of mikið um hvað við ætlum okkur heldur viljum við bara semja lög og sjá hvað setur. Sumt af því sem við erum að vinna að lítur mjög vel út.“

U2 gaf undir lok síðasta árs út safnplötu sem hafði að geyma tvö ný lög, annars vegar The Saints Are Coming, sem hljómsveitarmeðlimir endurgerðu með bandarísku rokkurunum í Green Day, og hins vegar Windows in the Skies. Á svipuðum tíma lauk Vertigo-tónleikaferð U2 um heiminn sem hafði staðið yfir í tuttugu mánuði. Meðal hljómsveita sem hituðu upp eða gestasöngvara á ferðalaginu voru The Killers, The Arcade Fire, Interpol, Mary J Blige, Patti Smith og Eddie Vedder.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×