Tónlist

Ampop á iTunes

Þrjár síðustu plötur Ampop eru fáanlegar á iTunes.
Þrjár síðustu plötur Ampop eru fáanlegar á iTunes.

Hljómsveitin Ampop hefur gert samning við iTunes um að þar verði fáanlegar þrjár síðustu plötur sveitarinnar. „Við vorum að reyna þetta fyrir ári. Þá þurftum við að hafa samning við plötufyrirtæki en við komumst einhvern veginn inn núna. Það er væntanlega vegna þess að við erum komnir með útgáfusamning í Frakklandi og höfum verið sýnilegir í Bandaríkjunum,“ segir Birgir Hilmarsson, söngvari Ampop.

„Það eru virkilega góð tíðindi að þeir höfðu áhuga á þessu.“Ampop spilaði á dögunum á tónleikum í Los Angeles og New York. „Það gekk feikivel og það er verið að skoða ákveðin tilboð í augnablikinu,“ segir Birgir. Ampop hefur einnig fengið góðar viðtökur í Frakklandi og var My Delusions það smáskífulag sem var mest sótt á netinu þar í landi á síðasta ári. Að sögn Birgis vonast þeir félagar til að fara þangað í tónleikaferð til að fylgja eftir vinsældum sínum. Fyrst er þó stefnan sett á Bandaríkjamarkað auk þess sem Bretland er vel inni í myndinni.

Ampop átti nýverið lag í þættinum I"m From Rolling Stone á tónlistarstöðinni MTV sem er sýndur víðs vegar um heiminn. Um var að ræða lagið Don"t Let Me Down af plötunni My Delusions. „Þetta er fyrsta alþjóðlega sjónvarpskynningin sem við fáum. Þetta voru mjög hressandi og uppörvandi fréttir fyrir okkur,“ segir Birgir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×