Viðskipti innlent

Mogginn til bjargar bönkum

Það gladdi Aurasálina þegar fréttist að útlensk hagspekifyrirtæki hefðu komist að þeirri niðurstöðu að engin ástæða væri að óttast um íslensku bankana því ríkissjóður stæði svo sterkur á bak við þá. Þessi tíðindi hafa vakið mikla athygli um gjörvallan heim þannig að íslensku bankarnir hafa endurheimt sinn fyrri sess á kostnað matsfyrirtækisins Moody"s.

Fyrirtækið Moody"s heitir í höfuð-ið á stofnanda sínum sem var þekktur fyrir miklar skapsveiflur. Síðan hefur sú hefð haldist í fyrirtækinu að allar aðferðir séu óútreiknanlegar og enginn stöðugleiki sé í ráðleggingum þess. Hins vegar er Aurasálin sannfærð um að íslenska hagkerfið eigi skilið þessa miklu viðurkenningu sem hinn óútreiknanlegi hagspekingur hefur veitt því.

Grundvöllur mats Moody"s er sú staðreynd að bankarnir starfa innan íslenska hagkerfisins þar sem Framsóknarflokkurinn fer með mikil áhrif í krafti framsýnnar iðnaðarstefnu sinnar. Stóriðjan, og sá farsæli grundvöllur sem hún hefur skapað í efnahag þjóðarinnar, hefur því bjargað bönkunum í þeirra braski og ævintýramennsku á erlendri grund.

Þá er vitaskuld ótalið hlutverk Morgunblaðsins við að tryggja framtíð bankanna en á síðasta ári lagði Morgunblaðið sitt mikilvæga lóð á vogarskálar aukinnar ábyrgðartilfinningar bankanna. Nú á blaðið aðeins eftir að auka með þeim sómatilfinningu og hefur þá tamið þá til fullnægjandi þroska svo taka megi þá alvarlega í þjóðfélagsumræðu meðal heldri manna og broddborgara.

Gagnrýni Morgunblaðsins á stefnu bankanna á síðasta ári var lykilþáttur í þeim umskiptum sem síðan hafa orðið. Áhrif Morgunblaðsins í íslensku samfélagi eru slík og þvílík að þegar blaðið beitir sér af öllu sínu afli, í frétta- og leiðaraskrifum, í þeim tilgangi að ná fram tiltekinni niðurstöðu, sem undantekningarlaust er rétt og þjóðinni fyrir bestu, þá stenst ekkert mátt blaðsins. Það er lán okkar Íslendinga að eiga blað sem vakir yfir hagsmunum okkar, réttum sið og almennu velsæmi.

Í fyrra þegar Morgunblaðið gat ekki lengur horft aðgerðarlaust upp á hvernig bankarnir voru smám saman að steypast í glötun vegna offjárfestinga og ofmetnaðar brugðust sumir bankamenn ókvæða við. Þeir töluðu illa um Morgunblaðið og sögðu það fara villur vegar og að hjá blaði allra landsmanna skorti skilning á flóknum heimi internasjónal fínans.

En nú er annað hljóð í strokknum. Nú vildu allir Reykjavíkurbréf kveðið hafa. Bankarnir ættu nú að sjá sóma sinn í því að þakka Morgunblaðinu almennilega fyrir að hafa tryggt þeim þessa hækkun lánshæfismats. Án varnaðarorða Morgunblaðsins hefðu þessi gleðitíðindi síðustu viku aldrei orðið.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×