Innlent

Tvítug kona kærði nauðgun á Selfossi

Konan og maðurinn höfðu verið á skemmtistað á Selfossi og farið heim saman til konunnar.
Konan og maðurinn höfðu verið á skemmtistað á Selfossi og farið heim saman til konunnar. MYND/E.Ól.

Tæplega fertugur karlmaður er grunaður um að hafa naugað rúmlega tvítugri stúlku á Selfossi aðfaranótt laugardagsins. Konan og maðurinn höfðu verið á skemmtistað á Selfossi og farið heim saman til konunnar. Þegar þangað var komið segir konan manninn hafa nauðgað sér.

Hún fór til lögreglunnar á Selfossi á laugardagsmorgun og kærði nauðgunina. Konan var send á Neyðarmóttöku vegna nauðgana og var karlmaðurinn handtekin síðar um morguninn. Hann var yfirheyrður og látinn laus um hádegi. Lögreglan á Selfossi rannsakar nú málið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×