Innlent

Hafði fimm hangikjötslæri á brott með sér

Lögreglan í Reykjavík leitar nú að stórtækum hangikjötsþjófi í einni af matvöruverslunum borgarinnar og segir lögregla engu líkara en sjálfur Ketkrókur hefði verið á ferðinni. Svo reyndist þó ekki vera enda mun jólasveinninn sá ekki vera væntanlegur til byggða fyrr en á Þorláksmessu. Maðurinn hafði fimm læri á brott með sér en lögregla vonast til þess að hafa hendur í hári hans áður en hann leggur sér þýfið til munns.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×