Innlent

Tók fimm stráka fyrir veggjakrot

Fimm ungir skemmdarvargar voru gripnir í austurborg Reykjavíkur um hálfníuleytið í gærkvöld en þeir eru grunaðir um veggjakrot. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. Um var að ræða stráka á grunnskólaaldri og fann lögregla í kjölfarið nokkuð af sprebrúsum og pennum. Fleiri ungmenni komu við sögu lögreglunnar í Reykjavík í gær því síðar um kvöldið voru höfð afskipti af sjö unglingum á aldrinum 14-17 ára. Þeim var vísað út af stað sem hefur vínveitingaleyfi. Dvöl þeirra var því brot á reglum en þess má líka geta að samkvæmt útivistarreglum áttu nokkrir úr hópnum að vera komnir til síns heima.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×