Innlent

Maður á níræðisaldri handtekinn fyrir akstur undir áhrifum

MYND/AP

Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tólf ökumönnum vegna ölvunaraksturs og eins vegna aksturs undir áhrifum lyfja um helgina. Flestir hinna teknu voru á þrítugs- og fertugsaldri en sá elsti er á tíræðisaldri.

Þá stöðvaði lögreglan för tveggja ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Sex ökumenn voru stöðvaðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi og fimm fyrir að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað. Þá voru allmargir teknir fyrir hraðakstur.

Fimmtíu og þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt um helgina. Flest voru þau minniháttar að undanskildu hörmulegu bílslysi á Suðurlandsvegi á laugardag en lögreglan í Reykjavík sinnti því útkalli. Í umræddu slysi létust tveir eins og fram hefur komið.

Í umferðarslysum innan borgarmarkanna var sjúkraflutningur í einu tilviki en nokkrir leituðu sér sjálfir aðstoðar á slysadeild eftir því sem segir á vef lögreglunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×