Innlent

Tekinn fimm sinnum á bíl án bílprófs

MYND/Guðmundur

Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af ungum ökumanni í liðinni viku þar sem hann reyndist ekki vera með bílpróf. Þetta væri varla í frásögur færandi nema fyrir það að þetta er í fimmta skiptið sem hann er tekinn án bílprófs. Reyndar hefur hann samkvæmt lögreglu aldrei tekið bílpróf þar sem brot hans hófust þegar hann var aðeins sextán ára. Þessa má geta maðurinn ungi hefur verið tekinn fyrir réttindaleysi við akstur fyrir austan fjall, í Reykjavík og á Akranesi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×