Lífið

Magni æfði með Húsbandinu

Magni ræðir við hljómborðsleikara Húsbandsins, Paul Mirkovich, á æfingu í Laugardalshöllinni í dag.
Magni ræðir við hljómborðsleikara Húsbandsins, Paul Mirkovich, á æfingu í Laugardalshöllinni í dag. MYND/Stöð 2
Það má búast við alvöru rokkstemmningu í Laugardalshöllinni annað kvöld þegar Magni Ásgeirsson treður þar upp ásamt þremur af félögum sínum úr raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova á sérstökum afmælistónleikum Magna. Þetta eru þau Dilana, Toby Rand og Storm Large sem ætla ásamt Húsbandinu úr þáttunum að trylla lýðinn.

Miðar á tónleikana seldust upp á um fimm tímum fyrr í mánuðinum og því var brugðið á það ráð að halda aukatónleika sem verða á föstudaginn, á sjálfum afmælisdegi Magna Ásgeirssonar. Æfingar vegna tónleikanna hafa staðið yfir í dag en þar endurnýjuðu Magni og strákarnir í Húsbandinu kynni sín. Enn er hægt að fá miða á aukatónleikana á miði.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×