Innlent

Sautján umferðaróhöpp í Reykjavík í gær

MYND/Vilhelm

Sautján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík í gær og stungu þeir sem keyrðu á af í þremur tilfellum. Óhöppin voru flest minni háttar eftir því sem fram kemur á vef lögreglunnar en í einu tilviki var ökumaður fluttur á slysadeild. Sá ók vörubifreið en hún valt þegar sturta átti farminum af.

Þá var myndavélabíll lögreglunnar á ferðinni í gær og myndaði m.a. brot 24 ökumanna við Foldaskóla í Grafarvogi. Meðalhraði þeirra var rúmlega 46 km/klst en sá sem hraðast ók mældist á 52 km hraða. Lögreglan var við hraðamælingar víða annars staðar í borginni og í Breiðholti stöðvaði hún för tveggja ökumanna sem óku á tæplega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða í Norðurfelli og Gyðufelli.

Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir fyrir að spenna ekki beltin og fjórir óku gegn rauðu ljósi. Þá hafði lögreglan afskipti af allmörgum ökumönnum sem vanræktu merkjagjöf. Einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur en sá var stöðvaður í miðbænum í nótt. Þá má geta þess að klippt voru skrásetningarnúmer af tíu ökutækjum sem öll voru ótryggð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×