Innlent

Batt sleða við bíl og dró félaga sinn

Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tveimur piltum, 16 og 17 ára, í einu úthverfa borgarinnar í gærkvöld sem bundið höfðu sleða við bíl eldri piltsins sem ók síðan með þann yngri í eftirdragi á sleðanum. Þeim var gert að hætta þessari iðju tafarlaust og jafnframt bent á hættuna sem þessu fylgdi. Fram kemur á vef lögreglunnar að henni hafi borist ábendingar um börn sem voru að leik í snjó nærri eða við umferðargötur. Af því tilefni biður lögreglan foreldra um að brýna fyrir börnum sínum að leika sér á öruggum svæðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×