Innlent

Leita manns sem reyndi að lokka unga stúlku upp í bíl sinn

Lögreglan í Reykjavík leitar að manni, sem er grunaður um að hafa ætlað að beita átta ára stúlku kynferðislegu ofbeldi. Hann lokkaði hana upp í bíl sinn skammt frá Rauðavatni á sunnudag.

Vinkona stúlkunnar kallaði á eftir henni varnaðarorð og hljóp síðan heim til að láta vita. Maðurinn hefur líklega áttað sig á í hvað stefndi vegna viðbragða vinkonunnar því hann sleppti stúlkunni út úr bílnum eftir að hafa ekið stuttan spöl og hvarf á braut. Lögregla lítur málið alvarlegum augum og heldur leitinni áfram.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×